RB Leipzig er komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar og er það í fyrsta sinn í sögunni.
Leipzig var í riðli með Zenit, Benfica og Lyon en eftir 2-2 jafntefli við Lyon í kvöld varð sætið traust.
Þýska liðið hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár og berst á toppnum í þýsku úrvalsdeildinni.
Stjóri liðsins er Julian Nagelsmann en hann varð í kvöld yngsti stjóri sögunnar til að komast í 16-liða úrslitin.
Nagelsmann er líklega efnilegasti þjálfari heims en hann er aðeins 32 ára gamall og á því nóg eftir.