Martin Keown, goðsögn Arsenal, er með ráð fyrir Freddie Ljungberg, tímabundinn stjóra liðsins.
Ljungberg mun stýra Arsenal í fyrsta sinn í dag og vill Keown sjá hann bekkja stjörnuna David Luiz.
,,Sama hver tekur við eftir Freddie Ljungberg þá fær hann sömu vandamál og Emery náði ekki að laga,“ sagði Keown.
,,Það vantar allan styrkleika í vörnina til dæmis. Gegn Norwich þá myndi ég henda David Luiz á bekkinn.“
,,Ég myndi nota Sokratis og Calum Chambers og Lucas Torreira aftarlega á miðjunni að sjá um svæðið fyrir framan.“