Tveir stuðningsmenn Wolves voru handteknir er liðið heimsótti Brighton í ensku úrvalsdeildinni á morgun, þeir eru grunaðir um fordóma gagnvart hommum.
Mennirnir tveir voru handteknir á leiknum og yfirheyrðir en leiknum lauk með 2-2 jafntefli.
Fordómar gagnvart hommum koma reglulega upp á leikjum Brighton, sungið er um að bærinn sé fullur af hommum en félagið og yfirvöld hafa tekið á því.
Um helgina var átak hjá ensku úrvalsdeildinni er varðar fordóma sem samkynhneigt fólk má þola í fótboltanum.
Mennirnir eiga von á vænri sekt og bann frá knattspyrnuvöllum eftir hegðun sína um helgina.