Axel Witsel, leikmaður Borussia Dortmund, mun ekki spila meira á þessu ári eftir að hafa meiðst í gær.
Witsel er mikilvægur leikmaður Dortmund en hann var fluttur á spítala eftir að hafa dottið á heimili sínu.
Belginn þurfti að fara í aðgerð á andliti eftir fallið en hvað átti sér stað nákvæmlega er ekki komið í ljós.
Lucien Favre, stjóri Dortmund, staðfesti það í dag að Witsel myndi ekki spila meira á árinu vegna meiðslana.
Witsel lék með Dortmund í 5-0 sigri á Fortuna Dusseldorf um helgina en mun nú allavega missa af fjórum leikjum.