Massimiliano Allegri, fyrrum stjóri Juventus, mun taka við liði á næsta ári en hann staðfesti það í gær.
Allegri náði góðum árangri með Juventus en hann lét af störfum í sumar og tók Maurizio Sarri við.
Hann er þó ekki að taka við Arsenal eða Bayern Munchen sem eru án stjóra heldur ætlar að bíða þar til næsta sumar.
,,Næsta ár verður mikilvægt ár. Það verður mikilvægt fyrir þá ákvörðun sem ég mun taka og ég þarf að vera undirbúinn,“ sagði Allegri.
,,Eftir árs frí og fimm ár hjá Juventus þá vil ég ekki snúa aftur í leikinn og gera illa, það myndi bögga mig verulega.„