Ajax 0-2 Willem
0-1 Mike Tresor Ndayishimiye(víti)
0-2 Damil Dankerlui
Ajax tapaði mjög óvænt í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti Willem II í 16. umferð.
Ajax er með sex stiga forskot á toppnum eftir 16 umferðir en AZ Alkmaar á nú leik til góða og getur brúað bilið.
Ajax var ósigrað í deildinni fyrir leik kvöldsins og var mun sterkari aðilinn í 0-2 tapi.
Willem er í þriðja sæti deildarinnar og átti níu skot að marki Ajax gegn 29 frá heimamönnum.