Jurgen Klopp hefur staðfest hvaða 23 leikmenn fara með liðinu á HM í Katar í þessum mánuði, Liverpool vann sér rétt á mótinu með því að vinna Meistaradeildina.
Liðið kemur inn í mótið í undanúrslitum og er ansi líklegt til sigurs í þessu móti.
Liverpool leikur 18 og 21 desember í Katar en liðið á einnig leik við Aston Villa í deildarbikarnum þann 17 desember.
Yngri leikmennirnir sem fara með til Katar gætu verið eftir á Englandi og farið til Katar eftir þann leik.
Leikmannahópurinn sem fer til Katar:
Alisson, Van Dijk, Wijnaldum, Lovren, Milner, Keita, Firmino, Mane, Salah, Gomez, Adrian, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Lallana, Lonergan, Shaqiri, Brewster, Robertson, Origi, Jones, Alexander-Arnold, Elliott, Williams.