Valur 3-2 KR
1-0 Patrick Pedersen (7′)
2-0 Andri Adolphsson (34′)
2-1 Tobias Thomsen (73′)
3-1 Birkir Heimisson (78′)
3-2 Pálmi Rafn Pálmason (81′)
Valur er sigurvegari í Bose-mótinu þetta árið eftir dramatískan leik við KR í úrslitum í kvöld.
Það vantaði ekki fjörið í úrslitaleikinn en Valur vann með þremur mörkum gegn tveimur og var lokakaflinn æsispennandi.
Áhorfendur fengu þrjú mörk og rautt spjald undir lokin en Kristján Flóki Finnbogason fékk rautt hjá KR.
Þetta var fyrsti titill Heimis Guðjónssonar með Val en hann tók við af Ólafi Jóhannessyni fyrr á árinu.