Everton er búið að reka knattspyrnustjóra sinn Marco Silva enm þetta varð staðfest í kvöld.
Silva hefur verið orðaður við sparkið síðustu vikur og var 5-2 tap gegn Liverpool í gær síðasti naglinn í kistuna.
Portúgalinn þjálfaðði Everton í 18 mánuði en liðið er í fallsæti þessa stundina eftir tapið í gær.
Harðhausinn Duncan Ferguson mun stýra Everton í næsta leik sem er gegn Chelsea um helgina.
Ferguson er þekktur fyrir að vera mikill nagli en hann lék með Everton í alls 12 ár á ferlinum.