Tim Krul, markvörður Norwich, ræddi aðeins við Mesut Özil, leikmann Arsenal, í leik liðanna í gær.
Krul talaði við Özil eftir fyrra mark Arsenal sem Pierre Emerick Aubameyang skoraði úr vítaspyrnu.
Vítaspyrnan var endurtekin eftir að leikmenn höfðu hlaupið of snemma inn í vítateiginn.
Krul var óánægður með þá ákvörðun og ræddi aðeins við Özil eftir þetta fíaskó.
,,Starfið mitt er að komast inn í hausin á framherjum svo þeir byrji að efast,“ sagði Krul.
,,Ég tók aðeins lengri tíma en dómarinn vildi og hann gaf mér gult spjald. Eftir það þá sagði ég vil Özil að þeir hafi verið heppnir, að dómarinn hafi hjálpað þeim.“