Arturo Vidal, leikmaður Barcelona, staðfestir að hann sé að íhuga að yfirgefa félagið.
Vidal hefur aðeins byrjað þrjá deildarleiki á tímabilinu og er ekki í lykilhlutverki á Nou Camp.
Miðjumaðurinn íhugar nú stöðu sína og gæti farið í janúarglugganum sem opnar í byrjun næsta árs.
,,Ef mér líður eins og ég sé ekki mikilvægur í lok desember eða lok tímabils þá þarf ég að taka ákvörðun og finna annað tækifæri þar sem ég er mikilvægur,“ sagði Vidal.
,,Það eru alltaf að koma tilboð en ég einbeiti mér að Barcelona og vill hjálpa liðinu eins vel og ég get.„