Spænska blaðið Sport greinir frá því í dag að Pierre-Emerick Aubameyang sé að bíða með að framlengja við félagið.
Aubameyang verður samningslaus árið 2021 en hann hefur enn ekki krotað undir nýjan samning.
Sport greinir frá því að Aubameyang sé að bíða eftir Barcelona og sjá félagaskipti þangað séu möguleiki.
Aubameyang hefur lengi sagst vilja spila á Spáni en hann lék áður með Dortmund í Þýskalandi.
Það yrði áfall fyrir Arsenal að missa leikmanninn sem skorar reglulega á Emirates.