Tottenham á Englandi hefur staðfest það að Jose Mourinho sé nýr þjálfari félagsins.
Mourinho hefur verið án félagsins síðan í desember í fyrra en hann var þá rekinn frá Manchester United.
Hann hefur verið orðaður við starfið síðustu mánuði en Mauricio Pochettino var rekinn í gær.
Pochettino starfaði hjá Tottenham í heil fimm ár en nú tekur nýr kafli við hjá félaginu.
,,Í Jose þá erum við með einn sigursælasta þjálfara knattspyrnunnar. Hann er með mikla reynslu og getur hvatt lið áfram,“ sagði Daniel Levy, eigandi liðsins í morgun.
Mourinho var áður þjálfari Chelsea og er ljóst að þessi ráðning fer ekki vel í stuðningsmenn liðsins.
Tottenham situr í 14. sæti úrvalsdeildarinnar og á Mourinho því erfitt verk fyrir höndum.