John Obi Mikel, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að Eden Hazard sé latur og að hann sé ekki duglegur á æfingum.
Hazard lék með Mikel hjá Chelsea á sínum tíma en sá fyrrnefndi er í dag hjá stórliði Real Madrid.
,,Hazard er með ótrúleg gæði. Hann er kannski ekki eins góður og Leo Messi en hann getur hvað sem er við boltann,“ sagði Mikel.
,,Hann var ekki hrifinn af því að æfa vel. Á meðan við vorum að því þá stóð hann bara þarna og beið eftir okkur.“
,,Á sunnudögum þá var hann hins vegar alltaf maður leiksins, það var ótrúlegt.“