Íslenska karlalandsliðið spilaði leik við Tyrki í undankeppni EM í kvöld en leikið var ytra.
Ísland þurfti að vinna leik kvöldsins til að eiga möguleika á því að ná öðru sæti riðilsins og komast þar með á EM.
Leikurinn var ágætis skemmtun í síðari hálfleik en því miður fyrir áhorfendur voru mörkin engin.
Ísland er því ekki á leið á EM úr þessari riðlakeppni en fer þess í stað í umspil í Þjóðadeildinni.
Þjóðin sá leik kvöldsins og hafði sitt að segja.
Nei sko bara eins og á Eurovision: Engar konur í stúkunni #TURISL
— Laufey H. Guðmundsd. (@HLaufey) 14 November 2019
Hvaða fokking skipting er þetta að setja Hörð Björgvin inná?! #fotboltinet #TURISL
— Guðmundur Auðun (@GummiAudun) 14 November 2019
Haukur Harðar að droppa hvar leikmenn spila í stúdíóinu #TURISL #fotboltinet pic.twitter.com/iTaC97Q75e
— Ragnar Már Hannesson (@ragnarm95) 14 November 2019
*
Jæja hvenær tekur @freyrale við þessu? #TURISL
— ARON ® (@heilagursjomli) 14 November 2019
Það er ein kona í Istanbul að horfa á leikinn #TURISL
— Dora Magnusdottir (@doramagn) 14 November 2019
Þetta er með steiktari skiptingum sem ég hef séð lengi þegar lið þarf sigur.
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) 14 November 2019
Loksins spilar Mækarinn landsleik, kannski ekki sá Mæk sem ég hefði viljað sjá en samt Mækari
— Hörður S Jónsson (@hoddi23) 14 November 2019
Gerðu sóknarskiptingu! Þurfum sigur ekki að halda í jafntefli🙄
— Gardar Gunnlaugsson (@Gunnlaugsson9) 14 November 2019
Þetta er ljómandi ágætt í Istanbúl og væri bara ljómandi gott ef jafntefli væri nóg. Svo er ekki. Kannski aðeins að reyna sækja núna?
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) 14 November 2019
Hefur twitter séð endursýningu á einhverju sem snertir tilburði Íslands annað en brot? #tyrIsl #ruv #fotboltinet #alltdisrespectið
— Toti (@Totinn) 14 November 2019
Hversu booring skipting, þegar við þurfum að vinna, kemur þessi viðbjóður #island #tyrkland
— BjarkiÞórHilmarsson (@bjarkithorr) 14 November 2019