Það er ný stjarna komin upp á sjónarsviðið í knattspyrnunni en sá strákur ber nafnið Erling Braut Haland.
Haland er 19 ára gamall Norðmaður en hann skrifaði undir samning við RB Salzburg fyrr á þessu ári.
Haland kom til félagsins frá Molde í Noregi þar sem hann skoraði 14 mörk í 39 deildarleikjum sem táningur. Strákurinn er einn allra efnilegasti leikmaður heims og er byrjaður að raða inn mörkum með Salzburg.
Haland hefur skorað fimm þrennur á þessu tímabili og öllum er ljóst að hann fer í stærra lið í janúar eða næsta sumar. Öll stærstu lið Evrópu vilja fá hann en enska úrvalsdeildin er sögð heilla hann mest.
Haland er ekki með kærustu en þess í stað sefur hann með fimm bolta í rúminu, þú færð að eiga boltann eftir leik sem þú skorar þrennu í dag.
,,Ég er með fimm þrennu bolta í rúminu og sef með þá þar, ég sef mjög vel með þá mér við hlið. Þeir eru mínar kærustur,“ sagði Haland léttur um málið.