fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Það var búið að senda Sterling heim: Var í bílnum þegar Southgate hætti við

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 12. nóvember 2019 14:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raheem Sterling, leikmaður Manchester City, verður ekki með enska landsliðinu í undankeppni EM á fimmtudag. Þetta var staðfest í gær en Gareth Southgate, landsliðsþjálfari, gaf frá sér stutt skilaboð. Þessar fregnir voru staðfestar stuttu eftir að greint var frá heiftarlegu rifrildi Sterling við Joe Gomez á æfingu enska liðsins.

Sterling og Gomez höfðu átt í átökum á sunnudag þegar Liverpool vann góðan sigur á Manchester City. Ensk blöð segja að Gomez og Sterling hafi skipst á orðum í matsal enska landsliðsins. Sterling varð afar reiður og reyndi að taka Gomez hálstaki, áður en stigið var á milli þeirra.

Sky Sports segir að Sterling hafi labbað inn í matsalinn og þá hafi Gomez og aðrir verið að hlæja. Sterling tók því illa og sagði við Gomez. ,,Heldur þú að þú sért orðinn stór strákur núna,“ sagði Sterling. Allir héldu að um „banter“ eins og Englendingar segja, væri að ræða. Sterling labbaði svo að Gomez og reyndi að grípa um háls Gomez. Varnarmaður Liverpool varð afar reiður og voru leikmenn fljótir á milli þeirra.

Búið var að senda Sterling heim, þegar Gareth Southgate hætti við. Hann hringdi í Sterling sem var á leið heim, og útskýrði þá ákvörðun. Sterling snéri þá aftur á æfingasvæði Englands. Hann fær hins vegar ekki að spila á fimmtudag. Sagt er að Joe Gomez hafi beðið Southgate um að refsa Sterling ekki, málinu væru lokið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans

Ten Hag sagður á útleið – Þetta var síðasti naglinn í kistu hans