Pétur Viðarsson, varnarmaður FH hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Vefmiðilinn, mbl segir frá.
„Þetta er búið að blunda í mér og ég held að þetta sé bara orðið gott. Þetta er búinn að vera ótrúlega skemmtilegur tími og frábær forréttindi að fá að spila fyrir þennan klúbb og taka þátt í velgengninni sem hefur verið hjá félaginu. Ég hef fengið að taka þátt í ótrúlegu ævintýri, Evrópuferðirnar allar og vinna marga titla með liðinu. Mér finnst eins og ég sé nýbyrjaður og fyndið að ég sé búinn að taka tólf tímabil með FH,“ sagði Pétur í samtali við vefmiðilinn, mbl.is.
Pétur hefur spilað með meistaraflokki FH frá 2006 og hefur verið í lykilhlutverki síðustu ár.
Ólafur Kristjánsson er að hefja sitt þriðja ár í starfi og allt stefnir í að hann þurfi að smíða nýtt lið. Kristinn Steindórsson, Cédric D’Ulivo og fleiri hafa yfirgefið félagið.
Þá hefur Davíð Þór Viðarsson lagt skóna á hilluna og Atli Guðnason er án samnings og skoðar sín mál. Baldur Sigurðsson gekk í raðir FH í gær og má búast við frekari liðsstyrk í Kaplakrika á næstu vikum.