Manchester City mun eyða allt að 100 milljónum punda í janúar til að halda í við Liverpool í ensku deildinni.
Enskir miðlar greina frá þessu en City er heilum níu stigum frá Liverpool eftir tap um helgina.
Liverpool lagði City 3-1 á Anfield en það síðarnefnda hefur verið í bölvuðu basli í öftustu víglínu.
City mun skoða það að fá hafsent inn í janúar og einnig arftaka David Silva sem yfirgefur félagið næsta sumar.
Það er nóg til af peningum hjá City og fær Pep Guardiola að skoða sig um þegar nýja árið hefst.