Arsene Wenger, fyrrum stjóri Arsenal, mun ekki taka við Bayern Munchen eins og talað var um.
Þetta staðfesti Karl Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern, í gær og hefur Wenger einnig staðfest það sjálfur.
Wenger er 70 ára gamall en hann sagði fyrir helgi að hann myndi ræða við Bayern í næstu viku.
Niko Kovac var rekinn frá Bayern í síðustu viku og leitar félagið þess vegna að nýjum stjóra.
,,Ég óska Bayern góðs gengis og fyrir mér þá er þetta mál klárað,“ er haft eftir Wenger hjá BeIN Sports.