Taison, leikmaður Shakhtar Donetsk, hefur tjáð sig efir mjög sorglegt atvik sem átti sér stað um helgina.
Taison var rekinn af velli í leik gegn Dynamo Kiev en hann svaraði stuðninsmönnum gestaliðsins sem voru með kynþáttaníð í hans garð.
Miðjumaðurinn gaf stuðningsmönnum puttann, þrumaði boltanum í átt að þeim áður en hann labbaði grátandi burt og fékk síðar rautt spjald.
,,Ég elska mitt fólk, ég mun berjast fyrir minn húðlit og allt sem ég geri er gert af ást,“ sagði Taison.
,,Tárin stóðu fyrir hjálparleysi, ég gat ekkert gert í þessu á þessu augnabliki. Okkur var kennt mjög snemma að vera sterk og berjast.“
,,Við berjumst fyrir okkar jafnrétti. Mitt hlutverk er að berja í bringuna, halda hausnum uppi og berjast.“