Það var stuð og stemming í ensku úrvalsdeildinni um helgina en Liverpool steig stórt skref, í átt að vinna deildina. Liðið vann 3-1 sigur á Manchester City og hefur átta stiga forskot á toppi deildarinnar.
Chelsea hélt sigurgöngu sinni áfram og Manchester United vann sigur á Brighton.
Leicester vann sigur á Arsenal og Tottenham missteig gegn Sheffield United á heimavelli.
Burnley lék sér að West Ham og Everton vann góðan sigur á Southampton.
Sky Sports uppfærir lista sinn yfir 50 bestu leikmenn deildarinnar eftir hverja helgi, þar eru síðustu fimm leikir sem telja.