Franskir miðlar fjalla mikið um Neymar en hann var fljótur að skella sér til Barcelona um helgina.
Neymar horfði á PSG vinna sigur á Brest og brunaði svo út á flugvél, hann skellti sér yfir til Barcelona. Þar var partý sem Arthur Melo, liðsfélagi hann í Brasilíu var með.
Með Neymar í för var Noa Saez, þau hafa verið að rugla saman reitum síðustu vikur.
Hún er frá Malaga á Spáni en hefur búið í Barcelona síðustu ár, draumur Neymar er að losna frá París og fara aftur til Barcelona.
Þau sáust saman um helgina í Barcelona en Noa er með 25 þúsund fylgjendur á Instagram.