Það eru engar líkur á að Thomas Muller á á förum frá liði Bayern Munchen í janúarglugganum.
Þetta segir Hasan Salihamidzic, yfirmaður knattspyrnumála Bayern, en Muller er orðaður við brottför eftir takmarkaðar mínútur í byrjun tímabils.
,,Tveir leikmenn eru að glíma við langtíma meiðsli og þið reynið að sannfæra okkur um að losa leikmann,“ sagði Salihamidzic.
,,Þetta er skáldsaga sem þið skrifið reglulega. Við erum ekki að hugsa um leikmenn sem gætu farið.“
,,Við viljum koma liðinu af stað á ný og byrja að sýna stöðugleika.“