Starf Unai Emery hjá Arsenal er ekki í hættu ef marka má enska fjölmiðla í dag.
Stuðningsmenn Arsenal vilja sjá Emery kveðja eftir 2-0 tap gegn Leicester í deildinni í gær.
Arsenal hefur ekki verið sannfærandi í síðustu leikjum og virðist spilamennskan ekki vera að batna.
Stjórn Arsenal er þó ekki að íhuga að reka Emery sem tók við af Arsene Wenger á síðasta ári.
Arsenal er níu stigum frá toppnum þessa stundina en hefur þó gengið nokkuð vel í Evrópudeildinni.