Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, var mjög ánægður með sína menn í dag.
United vann 3-1 heimasigur á Brighton og segir Norðmaðurinn að það hafi verið besta frammistaða tímabilsins.
,,Ég held að þetta hafi verið besta frammistaðan okkar á tímabilinu,“ sagði Solskjær.
,,Hvernig við brugðumst við marki Brighton var frábært og við hefðum getað skorað allt að sjö mörk.“
,,Við vorum spennandi, skemmtilegir og það var gaman að sjá strákana skemmta sér.“