Unai Emery, stjóri Arsenal, er sagður vera undir pressu þessa stundina eftir slakt gengi undanfarið.
Emery tók við Arsenal fyrir meira en ári síðan en gengi liðsins hefur ekki lagast undir hans stjórn.
Það gæti verið erfitt fyrir leikmenn Arsenal að vinna með Emery sem er ekki sá besti í enskunni.
Nú er verið að birta vinsælt myndband af Emery á netinu þar sem hann ræðir við blaðamann eftir 2-0 tap gegn Leicester.
Hvað Emery segir í viðtalinu er óskiljanlegt en hann er með mjög sérstakan hreim.
WHAT DID U SAY pic.twitter.com/85xlKRdpHO
— hendogg (@HenryM131) 9 November 2019