Juventus vann stórleik kvöldsins í Serie A en liðið mætti AC Milan á Allianz Stadium.
Það var boðið upp á ágætis fjör í kvöld en áhorfendur fengu þó aðeins eitt mark.
Það gerði Paulo Dybala fyrir Juventus en hann kom inná sem varamaður í seinni hálfleik.
Dybala tók stöðu Cristiano Ronaldo í fremstu víglínu á 55. mínútu og skoraði markið á 77. mínútu.
Ronaldo var þó ekki sáttur með þessa skiptingu og kvartaði áður en hann labbaði beint inn í klefa.
Þetta var annar leikurinn í röð þar sem Ronaldo er tekinn af velli og fer það aðeins í taugarnar á Portúgalanum.