Leicester 2-0 Arsenal
1-0 Jamie Vardy(68′)
2-0 James Maddison(75′)
Nú er ekki ólíklegt að starf Unai Emery sé verulega í hættu eftir leik Arsenal við Leicester City í kvöld.
Það var leikið á King Power vellinum í Leicester og voru það heimamenn sem höfð betur.
Leicester var mun betra liðið á vellinum í dag og átti yfir 20 skot að marki gestanna frá London.
Jamie Vardy og James Maddison skoruðu mörk Leicester í leiknum sem er í öðru sæti deildarinnar eftir 2-0 sigur.