Gylfi Þór Sigurðsson fékk fína dóma fyrir sína frammistöðu er Everton spilaði í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Everton vann mikilvægan 2-1 útisigur á Southampton og spilaði Gylfi allan leikinn.
Gylfi hafði byrjað síðustu tvo leiki Everton á bekknum en nýtti tækifærið í dag.
Hann fær sjö í einkunn frá Liverpool Echo fyrir sína frammistöðu.
,,Brot af því besta frá Gylfa var sjáanlegt í fyrri hálfleik, hann tók þátt,“ sagði í einkunnagjöf hans.
,,Hann spilaði allar 90 mínúturnar og form hans og leikskilningur fengu að skína allan tímann.“