Aaron Ramsey, leikmaður Juventus, þurfti að biðja Cristiano Ronaldo afsökunar á miðvikudag.
Ramsey skoraði fyrra mark Juventus í 2-1 sigri á Lokomotiv Moskvu en hann potaði boltanum yfir línuna af mjög stuttu færi.
Boltinn var þó á leið yfir línuna og hefði markið annars verið skráð á goðsögnina Cristiano Ronaldo.
,,Ég hélt að markvörðurinn væri mun nær mér og ætti möguleika á að skutla sér og ná til boltans,“ sagði Ramsey.
,,Það var í eðli mínu að sjá til þess að boltinn færi yfir línuna. Ég er búinn að biðja Cristiano afsökunar.“