Daníel Leó Grétarsson, Aron Elís Þrándarson og Aron Sigurðarson eru allir í liði ársins, í næst efstu deild í Noregi. Íslendingavaktin segir frá.
Eurosport velur liðið en Daníel Leó og Aron Elís voru öflugir með Álasund, sem vann deildina. Sandefjord fer upp með liðinu en þar leika Emil Pálsson og Viðar Ari Jónsson.
Aron Sigurðarson hefur verið frábær með Start, komið að 26 mörkum og verið öflugur á kantinum.
Start er í þriðja sæti deildarinnar og fer í umspil um laust sæti í norsku úrvalsdeildinni.
Aron Elís er á förum frá Álasundi en hann vonast eftir því að fara í stærra félag sem borgar betri laun en Álasund.