fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Blikar staðfesta ráðningu á Óskari Hrafni

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 5. október 2019 11:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur ráðið Óskar Hrafn Þorvaldsson sem þjálfara meistaraflokks karla til næstu fjögurra ára.

Óskar þjálfaði yngri flokka KR og Gróttu um árabil og hefur þjálfað meistaraflokk Gróttu með góðum árangri frá 2017. Undir hans stjórn tryggði Grótta sér sæti í efstu deild nú í haust með sigri í Inkasso-deildinni. Óskar lék um langt árabil með meistaraflokki KR í efstu deild. Hann lék 3 A-landsleiki fyrir Íslands hönd auk fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands.

„Ég er þakklátur fyrir að vera treyst til að leiða, jafnöflugt félag og Breiðablik er, næstu árin. Leikmannahópurinn er framúrskarandi, aðstæðurnar fyrsta flokks og ég get ekki beðið eftir að byrja að vinna með öllu því góðu fólki sem kemur að félaginu. Á sama tíma kveð ég Seltjarnarnesið með söknuði, leikmannahóp, stjórn og starfsfólk sem ég hef átt tvö ótrúlega viðburðarrík ár með.“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson nýráðinn þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu.

Óskar á rætur að rekja í Kópavoginn, nánar tiltekið á Urðarbrautina, en hann er sonarsonur Jóhanns Baldurs heitins, þess kunna heiðursmanns og stór-Blika sem setti mikinn svip á félagið um áratuga skeið.

„Við í Breiðabliki erum mjög ánægð með að hafa samið við Óskar Hrafn um að taka að sér þjálfun karlaliðs félagsins og bjóðum hann innilega velkominn. Við teljum að áherslur Óskars Hrafns og hugmyndir varðandi þálfun samræmist afar vel því sem við viljum að Breiðablik standi fyrir sem uppeldis- og afreksklúbbur í fremstu röð á Íslandi. Óskar Hrafn tekur við góðu búi af forvera sínnum sem skilaði afar góðu starfi. Það er mat okkar að hann sé rétti einstaklingurinn til að leiða og móta faglegt starf okkar áfram í gegnum næstu áfanga“ segir Orri Hlöðversson formaður knattspyrnudeildar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Xavi fundaði með Barcelona í dag

Xavi fundaði með Barcelona í dag
433Sport
Í gær

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert

Væntanlegur stjóri Liverpool er harðhaus – Gerði Simeone trylltan en óttaðist ekkert
433Sport
Í gær

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar

KFA staðfestir komur Þórðar Ingasonar