fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
433Sport

ÍBV reynir að fá efnilegustu leikmenn landsins í sínar raðir

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 4. október 2019 21:01

Sveindís Jane er hér fyrir miðju

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkur eru á að Sigríður Lára Garðarsdóttir taki slaginn áfram með ÍBV í Pepsi Max-deild kvenna. Mörg lið hafa reynt að fá Sigríði til liðs við sig nú í haust. Sigríður sem var meðal annars í hópi kvennalandsliðsins á EM í Hollandi árið 2017, gæti því tekið slaginn með ÍBV eftir að Andri Ólafsson var ráðinn þjálfari liðsins á dögunum.

Sigríður er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum en hún er kröftugur miðjumaður, ÍBV var í fallbaráttu í Pepsi Max-deild kvenna í ár en góður lokasprettur bjargaði liðinu.

Sú saga gengur svo að ÍBV sé mjög virkt á leikmannamarkaðnum þessa stundina, þannig herma heimildir 433.is að liðið reyni að fá tvær efnilegustu knattspyrnukonur landsins í sínar raðir. ÍBV hefur samkvæmt heimildum áhuga á Ídu Marín Hermannsdóttir leikmanni Fylkis. Hún er aðeins 17 ára gömul en var öflug í sumar.

Ída á ættir að rekja til Eyja en faðir hennar er fyrrum landsliðsfyrirliðinn, Hermann Hreiðarsson. Samkvæmt heimildum 433.is hefur ÍBV mikinn áhuga á að fá hana í sínar raðir. Samningur Ídu við Fylki er senn á enda.

Samkvæmt sömu heimildum hefur ÍBV mikinn áhuga á að fá Sveindísi Jane Jónsdóttir, framherja Keflavíkur. Hún er fædd árið 2011 en er með samning við Keflavík til næstu tveggja ára. ÍBV þyrfti því að kaupa hana frá Keflavík.  Fleiri lið reyna að fá Ídu og Sveindísi í sínar raðir en Andri Ólafsson, nýr þjálfari liðsins er sagður stórhuga fyrir næstu leiktíð og freistar þess að fá unga og efnilega leikmenn til Eyja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning

United reynir að sannfæra Mainoo um að skrifa undir nýjan samning
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi

Sjáðu Pochettino lesa yfir blaðamönnum í gær – Þeir svöruðu honum fullum hálsi
433Sport
Í gær

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“

Ummæli í beinni útsendingu vekja athygli – „Rauðhærða pussa“
433Sport
Í gær

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“

Urðar yfir Arteta og segir þetta stærstu mistök hans – „Það hefur komið í bakið á okkur“