Halldór Orri Björnsson mun ekki leika með liði FH í Pepsi Max-deildinni næsta sumar.
Þetta staðfesti leikmaðurinn sjálfur í dag en hann hefur undanfarin þrjú ár spilað með félaginu.
Halldór greinir frá því að hann sé að breyta til í boltanum og óskar FH um leið góðs gengis.
Hann var áður á mála hjá Stjörnunni en spilaði rúmlega 50 leiki fyrir FH og gerði í þeim sex mörk.
Halldór reyndi einnig fyrir sér í atvinnumennsku hjá Falkenbergs í Svíþjóð árið 2014.