Michy Batshuayi reyndist hetja Chelsea í gær sem mætti Ajax í Meistaradeild Evrópu.
Belginn fékk tækifæri sem varamaður í gær og hann skoraði eina markið í sigri Chelsea.
Í fagnaðarlátunum þá fór Jorginho, liðsfélagi hans, kannski aðeins yfir strikið
Jorginho greip hressilega í pung Batshuayi þegar leikmenn liðsins fögnuðu marki þess síðarnefnda.
,,Má ég fá eistun mín til baka?“ skrifaði Batshuayi á samskiptamiðla og gerði grín að atvikinu.
Þetta má sjá hér.