Bjarni Helgason, vélbyssukjafturinn á Morgunblaðinu skrifar skemmtilegan bakvörð í blað dagsins. Þar ræðir hann um samstarsfélaga sinn sem fór veikur heim.
Blaðamaðurinn er ekki nefndur á nafn en sá hafði verið að ræða við mikilvæga landsliðsmenn sama dag og hann fór heim veikur. ,,Ég verð ekki oft veikur. Sérstaklega ekki í seinni tíð. Það gerist nánast aldrei. Kollegi minn á íþróttadeild Morgunblaðsins mætti galvaskur til leiks á mánudegi fyrir ekki svo löngu. Hann var allur hinn hressasti þegar ég kvaddi hann rétt fyrir hádegi til þess að fara á blaðamannafund hjá KKÍ. Þegar ég kom svo til baka þá var allt annað hljóð í manninum,„ skrifar Bjarni í blað dagsins.
Félagi Bjarna hafði orðið slappur á meðann hann brá sér af bæ, hann fór fljótlega heim með upp og niðurgang.
,,Ég mætti honum í matsalnum þar sem hann starði á gólfið. Þegar ég spurðu hann hvort hann væri ekki í góðu lagi þá stundi hann því upp úr sér að hann væri eitthvað slappur. Skemmst er frá því að segja að hann sagði ekki orð við mig það sem eftir lifði dags, eða allt þangað til hann fór ælandi á klósettið, klukkutíma síðar og svo beint heim á beddann.“
Atvikið átti sér stað nokkru fyrir leik karlalandsliðsins í fótbolta gegn Frakklandi, þar hafði veiki blaðamaðurinn rætt við tvo landsliðsmenn.“
,,Kollegi minn þjáðist af alvarlegri upp-og-niður-veiki. Það heyrðist ekki mikið í honum næstu daga. Það eins sem komst að hjá mér var hins vegar sú staðreynd að daginn sem hann fór veikur heim tók hann viðtöl við bæði Alfreð Finnbogason og Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmenn í knattspyrnu, sem voru á leið inn í mikilvægan leik gegn heimsmeisturum Frakka á föstudeginum.“
Bjarna stóð ekki á sama og hélt að Jóhann og Alfreð myndu fá þessa svæsnu kveisu.
,,Ég var með þetta á heilanum alla vikuna og beið eftir fréttum úr herbúðum landsliðsins um að Alfreð og Jóhann væru með svæsna magakveisu. Það var þungu fargi af mér létt þegar Erik Hamrén tilkynnti að allir leikmenn liðsins væru heilir heilsu á blaðamannfundi daginn fyrir leik. Ég vaknaði svo ferskur á föstudeginum, meira en tilbúinn í landsleikinn á Laugardalsvelli. Ég endaði hins vegar á því að fara veikur heim upp úr hádegi með upp-og-niður-veikina.“