Giftar stjörnur í ensku úrvalsdeildinni eru í umræðunni þessa stundina eftir grein frá the Daily Star.
Þar er fullyrt að margir giftir menn borgi 30 þúsund pundi á ári eða tæplega fimm milljónir króna og fái á móti boð um að mæta í kynlífspartý víðsvegar um heiminn.
Það er fyrirtækið Cinderella Escorts sem sér um að halda þessi partý en þar starfa fylgdardömur sem fá vel borgað fyrir sín störf.
Dömurnar þéna allt að tvö þúsund pund fyrir hvern klukkutíma og ferðast til að hitta stjörnurnar á rándýrum hótelum.
Ein fylgdardaman, Ksenia, ræddi við the Mirror um málið og um eitt partý sem var haldið eftir mikilvægan sigurleik.
,,Það voru allir blindfullir og dönsuðu þar til klukkan varð níu að morgni til,“ sagði Ksenia.
,,Allir mennirnir hoppuðu ofan í sundlaugina í fötunum og alls staðar þá voru konurnar að kela við þá.“
,,Þessi dagur var klikkaður. Það voru opnaðar um 600 kampavínsflöskur.“
Eins og staðan er þá er ekki nafngreint þessa leikmenn en einhver nöfn gætu komið upp á yfirborðið á næstu vikum.