Callum Hudson-Odoi, leikmaður Chelsea, hefur tjáð sig um kynþáttafordómana sem leikmenn Englands hafa þurft að takast á við.
Hudson-Odoi er sjálfur dökkur á hörund og hefur þurft að glíma við slíkt áreiti áður á ferlinum.
Leikmenn Englands urðu fyrir fordómum á dögunum er liðið vann 6-0 sigur á Búlgaríu á útivelli.
,,Það er ógeðslegt að heyra þetta eða sjá leikmenn verða fyrir þessum fordómum,“ sagði Hudson-Odoi.
,,Það er alls ekki í lagi. Ég segi alltaf að þið þurfið að standa saman sem lið og það er það sem strákarnir gerðu.“