Samkvæmt Kicker í Þýskalandi er Rúrik Gíslasn með tognuð liðbönd í ökkla og verður frá á næstunni.
Rúrik meiddist í síðustu viku og verður frá sökum þess.
Kantmaðurinn knái hefur komið við sögu í sex leikjum með í næstu efstu deild Þýskalands, með Sandhausen.
Rúrik var í HM hópi Íslands árið 2018 en Erik Hamren hefur kosið að velja hann ekki í landsliðshópinn undanfarið.
Rúrik hefur verið einn besti maður Sandhausen síðustu ár en ljóst er að hann verður ekki með á næstunni.