Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al-Arabi hefur staðfest að Birkir Bjarnason sé á barmi þess að skrifa undir hjá félaginu. Hann kom til Katar í gær. Mbl.is fjallar um málið.
Birkir mun gera samning fram í janúar en hann kemur til félagsins vegna meiðsla Arons Einars Gunnarssonar. Birkir hefur verið án félags frá því í ágúst.
Birkir rifti þá samningi sínum við Aston Villa en Aron Einar sem gekk í raðir Al-Arabi í sumar, sleit liðband í ökkla á dögunum
„Við búmst við því að Aron Einar verði frá keppni til áramóta. Hann má ekkert byrja að hreyfa sig fyrr en í fyrsta lagi eftir mánuð en læknar hafa talað um að það taki í það minnsta tvo og hálfan mánuð fyrir Aron að ná sér góðum eftir svona aðgerð sem hann fór í,“ sagði Heimir við mbl.is.
Það er því ljóst að landsliðsfyrirliðinn verður frá fram á nýtt ár sem er áfall fyrir Al-Arabi sem berst á toppi deildarinnar í Katar.