Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur varað Dele Alli og Jesse Lingard við því að tími þeirra með enska landsliðinu sé búinn.
Leikmennirnir hafa nú báðir tekið sig til og eru minna á samskiptamiðlum og í auglýsingum til að einbeita sér að fótboltanum.
Lingard spilar með United og Alli með Tottenham en þeir voru ekki valdir í enska landsliðshópinn á dögunum.
Mark Pougatch spurði Keane út í leikmennina tvo og hefur Írinn áhyggjur af félögunum.
,,Við höfum séð merki um þetta hjá einum eða tveimur ungum leikmönnum sem þú nefndir,“ sagði Keane við Pougatch.
,,Þeir hefðu átt að draga úr þessu fyrir ári síðan. Það er möguleiki að þeir fái ekki annað tækifæri – það gerist í fótboltanum.“