Þróttur Vogum er komið með nýjan þjálfara fyrir næsta tímabil en þetta staðfesti félagið í gær.
Það er Brynjar Gestsson sem mun taka við þjálfun liðsins sem spilar í 2.deildinni.
Úlfur Blandon hafði gert fína hluti með Þróttara og hafnaði liðið í fimmta sæti deildarinnar í sumar.
Tilkynning Þróttara:
Brynjar Gestsson er nýr þjàlfari meistaraflokks Þróttar Vogum.
Þróttur Vogum býður Binna hjartanlega velkominn aftur til starfa og hlakkar til samstarfsins.
Þróttur Vogum endaði í fimmta sæti 2. deildar í sumar undir stjórn Úlfs Blandon.