Keflavíkur-annál 2018 sem frumfluttur var á Þorrablóti Keflavíkur 2019 um liðna helgi hefur verið birtur á veraldarvefnum.
Þar er farið yfir árið í Keflavík en þar kemur meðal annars vandi karlaliðsins í fótbolta fyrir.
Keflavík féll úr Pepsi deild karla síðasta haust en félagið hafði lítið fjármagn til að spila úr og því fór sem fór.
Einn besti leikmaður liðsins, Einar Orri Einarsson gekk í raðir Kórdrengja eftir tímabilið. Kórdrengir er lið sem kom upp úr 4. deild karla síðasta sumar.
Liðið er skipað mörgum öflugum leikmönnum og er Einar Orri afar góð vibót við góðan leikmannahóp Kórdrengja. Grín var gert að félagaskiptum Einars sem lék sjálfur í atriðinu.
Umrætt atvik má sjá á mínútu 21 í myndbandinu hér að neðan.