KR verður sigurvegari í Pepsi Max-deild karla í kvöld, vinni liðið sigur á Val á útivelli. KR verður einnig Íslandsmeistari ef Breiðablik tapar fyrir Stjörnunni, sama hvernig úrslit þeirra verða.
Jafntefli í báðum leikjum tryggir KR einnig sigur í deildinni. Það eru því talsverðar líkur á því að KR vinni deildina.
KR hefur verið með jafn besta liðið í sumar, eina liðið sem hefur sýnt mikinn stöðuleika í leik sínum.
Þrír leikir fara fram í dag.
17.00 ÍA – Grindavík
19.15 Valur – KR
19.15 Breiðablik – Stjarnan