Jamie Vardy, leikmaður Leicester, er afar hrifinn af miðjumanninum N’Golo Kante sem spilar með Chelsea.
Kante vakti fyrst alvöru athygli með Leicester og vann deildina með liðinu áður en hann fór til Chelsea.
Vardy segir að það hafi verið frábært að spila með Kante og segir einnig skemmtilega sögu af Frakkanum.
,,Það var þvílíkt gaman að spila með N’Golo. Hann er krúttlegur náungi fyrir utan það að vera frábær fótboltamaður,“ sagði Vardy.
,,Þegar við töpuðum boltanum þá birtist hann bara á vellinum og vann hann aftur.“
,,Það var svo létt fyrir hann á æfingum. Ég er sannfærður um það að hann hafi tapað boltanum viljandi bara til að geta unnið hann aftur.“
,,Einu sinni sagði hann við okkur að hann væri að íhuga að hlaupa á æfingar á hverjum degi. Hann hljóp alltaf aðeins meira.“
,,Það kom okkur á óvart og við sannfærðum hann um að gera það ekki. Það var léttir í hvert skipti sem hann mætti á Mini Coopernum sínum á æfingu.“