Breiðablik 3-2 Sparta Prag
0-1 Christina Burkenroad (3′)
1-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (14′)
1-2 Christina Burkenroad (35′)
2-2 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (77′)
3-2 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (79′)
Breiðablik er í ágætri stöðu í Meistaradeild kvenna eftir leik við Sparta Prag frá Tékklandi í kvöld.
Um var að ræða fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og var leikið í Kópavogi.
Sparta komst yfir snemma leiks en Christina Burkenroad skoraði þá eftir þrjár mínútur.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir jafnaði svo metin fyrir Blika áður en Christina skoraði sitt annað mark fyrir Sparta.
Á 77. mínútu gerði Berglind sitt annað mark og jafnaði metin fyrir heimastúlkur og staðan orðin 2-2.
Tveimur mínútum seinna skoraði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir svo sigurmark Breiðabliks og fer liðið með forystu inn í seinni leikinn.