Rubi, stjóri Real Betis, vonar að Lionel Messi mæti kvefaður til leiks hjá Barcelona síðar í dag.
Messi missti af fyrsta leik Barcelona gegn Athletic Bilbao en liðið tapaði opnunarleiknum 1-0.
Messi ætti þó að vera klár fyrir leikinn í dag en Rubi væri alveg til í að sleppa því að mæta Argentínumanninum.
,,Ég held að Messi muni spila frá byrjun leiks. Það er það sem ég held,“ sagði Rubi.
,,Það væri fínt ef hann nær sér í kvef. Ekki að hann meiðist en kvef svo hann geti ekki spilað.“