Unai Emery, stjóri Arsenal, vonar að David Luiz haldi áfram að spila sama leik með liðinu og hann gerði með Chelsea.
Luiz er kannski þekktastur fyrir öflugan hægri fót og á það til að gefa frábærar stungusendingar af löngu færi.
Samkvæmt Telegraph þá hefur Emery rætt við Luiz og vill sjá hann gera nákvæmlega það sama fyrir Arsenal.
Það var enginn miðvörður sem skapaði eins mörg góð færi á síðustu leiktíð og Luiz.
Brasilíumaðurinn er 32 ára gamall en hann kom til Arsenal á lokadegi félagaskiptagluggans.