Real Madrid 1-1 Valladolid
1-0 Karim Benzema
1-1 Sergio Guardiola
Real Madrid tókst ekki að leggja lið Real Valladolid af velli í kvöld er liðin áttust við í spænsku úrvalsdeildinni.
Real komst yfir á 82. mínútu í kvöld en Karim Benzema skoraði þá fallegt mark fyrir heimamenn.
Ekki löngu síðar þá jafnaði Sergio Guardiola metin fyrir Valladolid og staðan allt í einu orðin 1-1.
Real átti 21 markskot í leiknum en tókst aðeins að gera eitt mark og það dugði ekki til.